| Menningarlegt áfall |
| Mánudagur, 26. október 2009 09:18 |
|
Ég er McDonalds fan, og skammast mín ekkert fyrir það.
Ég man ennþá daginn sem McDonalds opnaði í Skeifunni, daginn sem Davíð Oddsson slafraði í sig fyrsta BigMacnum, Alli bekkjarbróðir minn gerði sér sérstaka ferð niðreftir á hjóli til að geta farið í drive-through, og við strákarnir tókum allir leið 6 frá Hlíðaskóla niðurá Sogaveg, og löbbuðum þaðan yfir á McDonalds. Makkinn var ekki lengur eitthvað forboðið útlandanammi, það var hægt að fá sér Makka á Íslandi. Manni fannst það að hafa McDonalds veitingastað innan landsteinanna vera ákveðin mælistika á siðmenningu, á það að vera 'alvöru þjóð', og alltíeinu vorum við Íslendingar orðnir akkúrat það; alvöru.
Ég man ennþá ferðirnar sem við Orri vinur minn fórum á coltinum mínum niðrá Makka, átum og gerðum okkur glaðan dag. Coltinn minn var reyndar "sérútbúinn" með súper öflugri framljósahreinsisprautu, sem var hægt að snúa örlítið til hliðanna, og senda langar bunur af rúðupissi t.d. innum bílalúgur og á gangandi vegfarendur, sem jók skemmtanagildi ferðanna talsvert. Ég man líka eftir því þegar sóðabúllan Hressó var aksjúallí McDonalds og seldi BigMac og ostborgara útá Lækjartorg útum lúgu um helgarnætur. Hafandi gert margar vísindalegar úttektir á húsakynnun Hressingarskálans í gegnum tíðina, vil ég meina að hnignun staðarins hafi einmitt hafist fyrir alvöru þegar McDonalds flutti þaðan út, s.s. löngu áður en ákveðinn hópur Hornfirðinga hóf að frekventa stofnunina. Ég er því eðlilega í rusli yfir þessum fréttum, en hrósa þó happi yfir því að McDonalds borgarar ku hafa nánast óendanlegan líftíma, sem gerir hömstrun að álitlegum kosti.
Það allra versta er að nú sprettur örugglega upp hópur af e-m vinstri grænum lýð sem fagnar því að Makkinn sé að hverfa [innsk. ég sé að commentasnillingarnir á blogginu hans Silfur-Egils eru nú þegar byrjaðir] , og byrja að rúnka hvor öðrum um hversu miklu betra það sé nú að borða á grænum kosti eða í Manni Lifandi, eða að einu almennilegu borgararnir séu á stælnum eða búllunni, að McDonalds sé handbendi vondra kapítalista og færa jafnvel fyrir því rök að McDonalds séu ættaðir beint úr helvíti. Þetta verður sennilega jafnvel vatn á myllu sósíalistanna hérlendis sem í alvörunni bera saman og leggja að jöfnu afleiðingar bankahrunsins hérlendis við hrun kommúnismans í sovétríkjunum og nærsveitum og hungursneiðarinnar, morðaldarinnar og ömurleikans sem fylgdi í kjölfar þess að sú ormagryfja opnaðist.
Rosalega er þetta slæm byrjun á vikunni, helvítis mánudagur. |
Comments
McSteakhouse er eitthvað sem maður á eftir að sakna þrátt fyrir að hafa ekki verið tíður gestur þar seinustu árin en það er alltaf eitthvað við það að geta labbað inn á einn slíkann stað og fengið sér einn sveittann...
Splæsi annars á þig eilífðarborgara þegar þú kemur hingað út í alvöru menninguna..
RSS feed for comments to this post.